Þorsteinn Einarsson gaf út sína fyrstu sólóplötu þann 27. september síðastliðinn.
Platan heitir Love after death.
Þorsteinn gaf plötuna út undir listamannsnafninu Meddi Sinn.
Ég spurði Ásgeir Trausta, bróður Þorsteins, hvaðan þetta nafn kæmi. Ásgeir svaraði: “það er útaf því að við karlkyns afkomendur pabba köllum okkur oft meddara af því að afi hét Einar Metusalem. Svo bætti Steini við Sinn til að vera sniðugur. Medicine” sagði Ásgeir Trausti í stuttu spjalli við mig.
Rétt er að geta þess, þó svo að það eigi kannski ekki við í þessari frétt en ég læt það fljóta með, að Ásgeir Trausti vinnur að nýju efni sem kemur líklega út snemma árið 2025.
Nýja platan hans Þorsteins, eða þá Medda Sinns ef við reynu að fallbeygja listamannsnafnið hans, inniheldur 8 ný lög og er komin á Spotify.
Þorsteinn Einarsson er Meddi Sinn
Categories:
