Birgir Hákon gefur út plötuna 111

Birgir Hákon gefur út plötuna 111 post thumbnail image

Birgir Hákon gefur út sína aðra plötu. Platan heitir 111 og er unnin með pródúsentunum Mímir Bodinaud, Izleifur, Tommyonthetrack, Yung Actaviz, BNGRBOY og Ágúst Karel.

 

Birgir Hákon segir þetta um plötuna:

Platan 111 er plata sem ég hef verið mjög tregur að gefa út en elsta lagið á henni er um 6 ára gamalt, byrjaði að vinna í því árið 2018 en hélt að ég myndi ekki nota það.
Mér fannst þetta ekki beint vera hefðbundið album endilega en frekar stórt mixtape eða ep þar sem að það er ekki mikill strúktur á uppsetningu á henni eða mikil pæling á bakvið þetta, meira bara efni sem hefði safnast saman en svo einhvernveginn á lokametrunum þá varð þetta meiri plata en eitthvað annað.
Nafnið 111 er póstnúmer efra breiðholts, hverfið sem að bjó til Birgi Hákon, ég hef búið út um allan bæ og á óteljandi stöðum í gegnum ævina en mér finnst ég hafa orðið ég í Breiðholtinu 3 lög af plötunni eru komin út og verða 10 lög í heildina en ekki 9 eins og kynnt var á instagram, það er eitt svona smá leynilag sem fær að koma með.

Rapp-plötuna 111 með Birgin Hákoni er hægt að heyra á Spotify

Related Post