Hljómsveitin Crowfeet

Hljómsveitin Crowfeet post thumbnail image

Crowfeet er norsk rokkhljómsveit sem spilar ábreiður, oft með sínu eigin ívafi á klassískum rokklögum. Hljómsveitin spilar af fjölbreyttum lagalista sem inniheldur lög frá ýmsum tímabilum.
Crowfeet hefur spilað á norskum tónlistarstöðum, á ýmsum viðburðum og tónleikum. Hljómsveitin er tilvalin fyrir smáa og stóra viðburði sem þurfa rokkað andrúmsloft.

Saga

Joakim og Parinya eru stofnendur hljómsveitarinnar sem hóf göngu sína árið 2020 undir nafninu The White Container og þemað var rokk ábreiður.

“Nafnið varð til vegna þess að við þurftum hljómsveitarnafn fljótt þegar við fórum í að leigja æfingahúsnæði. Æfingahúsnæðið sem við leigðum var æfingahúsnæði Akershus tónlistarráðs sem samanstóð af tveimur hvítum gámum sem hafði verið breyttir í æfingahúsnæði. Og þaðan kom nafnið The White Container.

Árið 2022 höfðum við fengið alla hljómsveitarmeðlimi á sinn stað og þá vantaði betra hljómsveitarnafn. Eftir 70-80 nafnatillögur enduðum við á að kalla hlómsveitina Crowfeet.

Meðlimir:

  • Stofnandi og driffjöður: Joakim Sjølund-Gundersen (Jocke) Rytmagítar
  • Stofnandi Parinya Wongtongkham (Ton): Aðal gítarleikari
  • Águst Jóhannsson (Gus): Bassagítar
  • Pål Søvik: Trommur
  • Linda Yvonne Karakka-Michelsen: Söngur

Crowfeet samdi fyrr á árinu fyrsta lag hljómsveitarinnar. Það heitir Searching og sendu þau það inn í undankepppni Melody Gran Prix, sem er söngvakeppnin (unadanfari Eurovision) eins og við þekkjum þá keppni á Íslandi.
Lagið komst því miður ekki inn í aðal keppnina.
Hægt er að hlusta á lagið á heimasíðu Crowfeet á Facebook og á YouTube rás hljómsveitarinnar.