Indie popphljómsveitin VELVET MOON gaf út 11. október út lagið „A Love Song“ á smáskífu hjá Argle Bargle Studios. Lagið fylgir í kjölfar hinna heillandi laga „Hymn“ og „Daylight“ af væntanlegri plötu þeirra sem áætlað er að komi út árið 2025.
Með 15 milljónir streyma á ýmsum streymisveitum hafa fyrstu þrjár plötur hljómsveitarinnar veitt þeim alþjóðlega viðurkenningu og náði hljómsveitin toppnum á Spotify’s Viral listanum í Indónesíu.
Tónlist VELVET MOON hefur einnig notið vinsælda meðal vloggara (vídeó bloggara) og hefur verið í sjónvarpsauglýsingum fyrir vörumerki eins og Kappahl og Bollinger í Svíþjóð, auk þess að þau hafa spilað á sviðum tónlistarhátíða eins og t.d. á The Great Escape hátíðinni á Englandi.
Tímalausa hljóð laga þeirra hefur laðað að sér fjölbreyttan hóp aðdáenda á öllum aldri.
Þríeykið er frá Stokkhólmi og hefur byggt upp safn af djúpstæðum og áhrifamiklum lögum. Sandra Bjurman, textasmiður og söngkona hljómsveitarinnar, sækir innblástur beint frá eigin reynslu en veltir jafnframt fyrir sér stærri samfélagslegum og hnattrænum málum. Tónlistarlandslagið sem framleiðendurnir Stefan Örn og Johan Glössner skapa, fullkomnar frásögn Söndru og gerir hlustendum kleift að ferðast um litríkan heim tilfinninga. „A Love Song“ var samið af öllum þremur meðlimum hljómsveitarinnar og framleitt af Stefáni Erni og Johan Glössner. Hljóðblöndunarmaðurinn (mixing) útgáfunnar var Johan Kronlund, þekktur fyrir störf sín með listamönnum eins og Allan Walker, Veronica Maggio og Hovet. Hljómjöfnunarmaðurinn (mastering) var Björn Engelmann (ABBA, Titiyo, Allan Walker). Með áhrif frá War on Drugs, Joni Mitchell og Rycooder minnir núverandi hljómur sveitarinnar á seiðandi Synth Pop frá Chappell Roan, The Eurythmics og Cannons.
Þetta segja meðlimir hljómsveitarinnar um lagið: „A Love Song“ fangar á fallegan hátt bæði danshæfni og depurð danstónlistar áttunnar (9. áratugarins). Stórir trommusymbalar, „gated reverb“, kassalegt bassatrommuhljóð, djúpir og mjúkir synthatónar og rafmagnaður gítar flytja hlustandann á nostalgískan stað, á meðan ríkur og bjartur söngur Söndru svífur ástríðufullur yfir allt saman – hugsaðu „Hungry Eyes“, en með fersku og nútímalegu kvenlegu ívafi.
„A Love Song“ var samið í ferðalagi til Palma, stuttu eftir missi ástvinar. Hljómsveitin deildi ljóði sem var innblástur fyrir lagið: „Þeir bestu eru teknir snemma. Og þú varst það líka, Peder. Vængir þínir snertu alla. Hlátur þinn mun lifa í okkur“.
Lagið er í spilun á Radio PSB.
