Chesney Hawkes gefur út lagið Live forever

Chesney Hawkes gefur út lagið Live forever post thumbnail image

Þið munið kannski eftir laginu The one and only með Chesney Hawkes. Það lag kom út á plötunni Buddy’s song árið 1991.

Chesney er nú mættur með annað lagið af væntanlegri plötu sem kemur út þann 28. febrúar á næsta ári.
Þetta er lagið Live forever en áður hefur hann gefið út lagið Get a hold of yourself.

Það er enginn annar en Nik Kershaw sem kemur að nýju plötunni hans Chesney Hawkes, Living Arrows. Hann tekur þátt í að semja lagið Live Forever á plötunni. Þetta er sérstaklega athyglisvert þar sem Nik Kershaw skrifaði einnig stærsta smell Chesney, The One and Only árið 1991.

Hér er nýja lagið á Spotify.

Related Post