Það verður heldur betur full skemmtilegur þáttur í dag á Radio PSB.
Þátturinn Þrír í útvíkkun verður á dagskrá og hressleikinn verður í hávegum hafður.
Einhver viðtöl verð við einhverja ef símasamband bregst ekki. Skemmtileg tónlist verður leikin og svo verður hægt að biðja um óskalög á Facebook síðu Radio PSB.
Ný lög eftir þá þrjá í útvíkkun verða frumflutt. Harmonikuþema verður í þættinum, harmonikutónlist verður því spiluð en einnig önnur tónlist.
Fréttir á pólsku, sögur úr sveitinni, spjall um það sem gerðist í gær og fleira mætti svo sem telja upp.
Missið ekki af væntanlega stórgóðum þætti, Þrír í útvíkkun, í dag klukka 18:00 til 20:00 að íslenskum tíma.
Þú getur hlustað á þáttinn á síðunni Radio PSB og í TuneIn appinu og vefsíðunni.
