Rokkhljómsveitin The Now gefur út nýtt lag

Hljómsveitin The Now, sem leikur líflega og grípandi rokktónlist, gefur út nýtt lag og myndband, “Special Kind of Stupid”, af  frumraunarplötu þeirra, “Too Hot To Handle“, sem nú er hægt að nálgast á geisladisk, vínyl og öllum helstu streymisveitum í gegnum Trew Music.

Hljómsveitin segir um lagið: “Það fjallar um fyrrverandi kærustu vinar okkar sem var ótrúlega ósvífin við að halda framhjá honum í heimabæ okkar. Hún eyddi peningunum hans í stefnumót með öðrum mönnum, svo við þurftum að draga hann út og hjálpa honum til að komast aftur á rétt ról eftir þessa niðurlægingu. Við erum vissir um að þetta hefur gerst hjá fullt af öðru fólki!

Fyrsta platan þeirra kom út í mars á þessu ári og er alls ekki einhæf. Hún hefur glatt aðdáendur og fengið frábæra dóma alls staðar. Metaltalk sagði meðal annars: “Frábær lög, snjöll textasmíð, innsæi í upptökunum”. Emerging Rock Bands benti á að “Þeir hljóma sannarlega öðruvísi en allir aðrir“, Metalplanet Music sagði: “Ein besta útgáfa ársins 2024” og Overtone sagði: “Ótrúleg plata, 9.5/10.”


Hljómsveitin The Now

Hljómsveitin kemur frá Suður-Wales í Bretlandi. Tónlist þeirra er grípandi og aðgengileg og hefur verið spiluð á Planet Rock Track of The Week, ITV, BBC Radio 2 Johnnie Walker Show og Sky Sports, svo eitthvað sé nefnt. Platan var tekin upp í hinu virta Real World Studios og framleidd af Óskarsverðlaunahafanum Oli Jacobs, (Peter Gabriel, The 1975).

Hljómsveitin hefur spilað með Reef, Florence Black og deilt sviðinu með hetjunum sínum í Placebo, Noel Gallagher, Frank Carter and The Rattlesnakes, auk þess að fá frábærar viðtökur á The Isle of Wight Festival og Planet Rockstock. Árið 2024 hefur að verða viðburðaríkt fyrir þá því þeir hafa spilað á tveimur uppseldum tónleikum sem upphitunarhljómsveit fyrir þekktustu hljómsveit Bretlands, Feeder, eftir að hafa verið valdir af hljómsveitinni sjálfri.

Við teljum að platan okkar Too Hot To Handle sýni raunverulega fjölbreytileika okkar í lagasmíðum og hljóði. Við viljum ekki vera settir í einn bás hvað varðar stíl! Þú getur verið hver sem þú vilt vera, gert tónlistina sem þú trúir á og þú ættir ekki að hafa áhyggjur af því sem aðrir segja um það sem þú velur að gera í lífinu því það er einfaldlega of stutt fyrir áhyggjur” segja félagarnir í hljómsveitnni The Now.

Metalplanet Music
Emerging Rock Bands

Related Post