Dúettinn Astro – Verse gefur út þröngskífuna Coming Out.

Dúettinn Astro – Verse gefur út þröngskífuna Coming Out. post thumbnail image

Guðmundur Helgason sendir frá sér tilkynningu:

Dúettinn Astro-Verse, sem eru Guðmundur Helgason og Ify Ebuwa, gaf út í dag nýja EP-plötu á Bandcamp.
Þar er hægt að streyma henni beint, en líka að kaupa hana; alla plötuna eða bara einstök lög og hlaða niður (fyrir þá sem vilja styðja listamennina beint, og ekki bara láta Spotify græða á tónlistinni okkar).

Astro – Verse er samstarfsverkefni Ify Ebuwa (söngkonu og lagahöfundar frá London) og Guðmundar Helgasonar (Mundih á Spotify) íslensks lagahöfundar og tónskálds, búsettur í Noregi).

Samstarfið hófst sumarið 2022. Þau voru bæði þá í Platinum Year námi hjá TSA (The Songwriting Academy) og einn af leiðbeinendunum paraði þau saman. Þetta er fyrsta plata dúettsins, áður gáfu þau út smáskífu á helstu streymisveitunum.

Astro – Verse eru þegar byrjuð að vinna í meira efni.

Ögn um lögin þeirra á þessari plötu.

Believe in yourself:
Trú – Maður finnur svo oft ekki fyrir sjálfstrausti og þarf bara smá spark í rassinn til að drífa sig í það sem maður langar í. Þetta lag er ætlað til að hvetja og lífga upp á mann. Það var æði að semja það og vonandi fær fólk smá sjálfstraustsbúst þegar það hlustar.

Broken:
Þetta er frekar sorglegt lag en samt með von um að hlutirnir fari batnandi. Flestir geta örugglega tengt við þetta því allir vilja vera í góðum samböndum en það gengur ekki alltaf vel. Við byggðum þetta lag á okkar eigin reynslu af erfiðleikum í samböndum.

Coming out:
Öll höfum við á einhvern hátt þurft að fela hluta af okkur sjálfum. Þetta lag er bara partý til að fagna því að vera frjáls og vera sjálfur, bara nákvæmlega eins og maður er. Við vorum í alveg rosalega frelsandi stuði þegar við skrifuðum þetta lag.
Vonandi kveikir þetta lag í fólki og minnir á að það er allt í lagi að vera öðruvísi.

“Platan kemur út á hinum helstu streymisveitunum eftir tvær vikur, og þá með aukalagi, sem er endurbætt útgáfa af ABBA-lagi sem við gáfum út í lok ágúst. Njótið!”
segir Guðmundur Helgason.

Hér er hægt að hlusta á plötuna á bandcamp.

Related Post