Bubbi Morthens, einn þekktasti tónlistarmaður Íslands, var að gefa út nýja plötu, Dansaðu. Platan, sem hefur verið í bígerð í nokkurn tíma, er unnin með pródúsentinum Arnari Guðjónssyni. Hún ber með sér töluverð áhrif frá popp- og rokktónlist 8. áratugarins og diskótímabilinu.
Bubbi, fæddur 6. júní 1956, er þekktur fyrir ástríðufulla flutning sinn og texta sem fjalla oft um samfélagsleg málefni. Hann hefur samið og flutt fjölda laga í gegnum tíðina, bæði með hljómsveitum á borð við Utangarðsmenn og Egó, og sem solo listamaður. Meðal þekktustu laga hans eru “Ísbjarnarblús” og “Fjöllin hafa vakað”.
Á nýju plötunni má heyra Bubba syngja lagið “Föst milli glerja” með Elínu Hall. Fyrir plötuútgáfuna komu einnig út smáskífurnar “Dansaðu”, “Tveir tveir fjórir” og “Ástarvalsinn”.
Hljóðfæraleikarar á plötunni:
- Bubbi – Kassagítar, söngur
- Arnar Guðjónsson – Trommur, slagverk, bassi, gítarar, hljómborð., fiðla, selló, píanó, drum programming og bakraddir
- Jens Lindgård – básúna
- Petter Lindgård – Trompet
- Stúlknakór Félagar úr Aurora Kammerkór
- Elín Hall – Söngur
Platan var tekin upp í Aeronaut Studios í Reykjavík og Gula Studion í Malmö.
Platan á Apple Music.
