Jólalag Baggalúts 2025 er komið út. Lagið kallast Jól á rauðu og Baggalúts til halds og traust að þessu sinni er vísnasöngkonan, uppistandarinn og fjölmiðladrottningin Vigdís Hafliðadóttir, sem hér túlkar tímastjórnunarkvíða og aðventuangist nútímakonunnar af mikilli innlifun.
Gatnamótin glæsilegu og ástsælu við Miklubraut og Kringlumýrarbraut leika stórt hlutverk í laginu auk þess sem jólageitin, Skeifan og bónusfjölskylda Jesú Kr. Jósefssonar koma sterk inn. Biðlar Baggalútur til fólks að fara varlega á aðventunni og muna umfram allt að njóta — fremur en að þjóta.
