Of Monsters And Men (OMAM) senda frá sér plötutilkynningu

Of Monsters And Men (OMAM) senda frá sér plötutilkynningu post thumbnail image

OF MONSTERS AND MEN TILKYNNA UM NÝJA PLÖTU ALL IS LOVE AND PAIN IN THE MOUSE PARADE (17. OKTÓBER, 2025).
NÝTT LAG, “ORDINARY CREATURE” KOMIÐ ER NÚ ÞEGAR KOMIÐ ÚT.
NORÐUR-AMERÍKU TÚR HAUST 2025 TILKYNNTUR.

Í dag snýr hljómsveitin Of Monsters and Men aftur á sjónarsviðið með útgáfu nýs lags sem ber heitið „Ordinary Creature“. Lagið var tekið upp í hljóðveri þeirra hér á Íslandi og „fjallar um þá þrá að vakna til lífsins á ný eftir hálfgerðan dvala,“ segir hljómsveitin.
Myndbandið við lagið er leikstýrt af Erlendi Sveinssyni og fangar kyrrðina sem fylgir íslenskri sumarnóttu.

Við vorum afskaplega heppin að fá þennan fallega bíl lánaðan og gátum þar með tekið rúntinn um Selvog. Gatan frá kirkjunni að bæjarmörkum markar
lengd lagsins – Þetta er í raun gamla góði rúnturinn seint að kvöldi til, þreytan og melankólíuna sem því fylgir.“

 

Fyrsta plata í sex ár:
All is Love and Pain in the Mouse Parade er fyrsta breiðskífa OMAM í sex ár og kemur út
17. október 2025. Platan samanstendur af þrettán lögum sem hljómsveitin hefur unnið að
í hljóðveri sínu hér á landi síðustu þrjú árin.
„Okkur fannst mikilvægt að spilagleðin myndi skila sér, og lögðum mikið upp úr því að ná
„kemastríunni“ milli okkar.“ segir Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, söngkona og lagahöfundur
Sveitarinnar.

Umfangsmikil tónleikaferð um Norður-Ameríku:
Samhliða útgáfu nýju plötunnar hefur hljómsveitin tilkynnt umfangsmikla tónleikaferð um
Norður-Ameríku í október og nóvember. Meðal helstu viðkomustaða eru Brooklyn, Los
Angeles, Chicago, Boston og Nashville, auk stopps í Mexico City. Með í för er Ísfirska
tónlistarkonan Árný Margrét, sem kemur fram á öllum tónleikum.
Forsala hefst 11. ágúst á www.ofmonstersandmen.com
Almenn sala hefst 15. Ágúst
TÓNLEIKADAGSETNINGAR – Haust 2025
Þriðjudagur, 28. október – Toronto, Ontario HISTORY
Miðvikudagur, 29. október – Boston, Massachusetts Roadrunner
Laugardagur, 1. nóvember – Brooklyn, New York Brooklyn Paramount
Mánudagur, 3. nóvember – Washington, D.C. The Anthem
Þriðjudagur, 4. nóvember – Philadelphia, Pennsylvania The Met
Fimmtudagur, 6. nóvember – Chicago, Illinois The Salt Shed
Föstudagur, 7. nóvember – St. Paul, Minnesota Palace Theatre
Mánudagur, 10. nóvember – Nashville, Tennessee The Pinnacle
Þriðjudagur, 11. nóvember – Atlanta, Georgia The Eastern
Fimmtudagur, 13. nóvember – Austin, Texas ACL Live at The Moody Theater
Sunnudagur, 16. nóvember – Mexíkóborg, Mexíkó Corona Capital 2025 (tónlistarhátíð)
Miðvikudagur, 19. nóvember – Dallas, Texas The Bomb Factory
Laugardagur, 22. nóvember – Salt Lake City, Utah Rockwell at The Complex
Sunnudagur, 23. nóvember – Denver, Colorado Mission Ballroom
Þriðjudagur, 25. nóvember – Los Angeles, Kalifornía Hollywood Palladium
Miðvikudagur, 26. nóvember – Oakland, Kalifornía Fox Theater
Um hljómsveitina:
Of Monsters and Men stigu sín fyrstu skref á heimsvísu árið 2011 með plötunni My Head
Is An Animal sem hefur nú verið streymt yfir 2.5 milljarð sinnum á Spotify.
Bandið á fjörmörg tónleikaferðalög að baki, ásamt því að spila á stærstu
hátíðum heims: Coachella, Glastonbury, Lollapalooza o.fl.
Árið 2015 kom út platan Beneath the Skin sem náði 3. sæti á Billboard 200 listanum og
Fever Dream fylgdi í kjölfarið árið 2019 og náði hún í níunda sæti á sama lista. Þegar
heimsfaraldur setti svip sinn á heiminn allan tók sveitin upp heimildarmyndia Tíu, þar sem
leikstjórinn og íslandsvinurinn Dean Debois fylgdi þeim eftir á ýmsa staði á Íslandi sem
höfðu tilfiningaleg og söguleg gildi fyrir meðlimi hljómsveitarinnnar . Myndin var frumsýnd
á Tribeca Film Festival og vann til verðlauna á Dumbo Film Festival árið 2022. Samhliða
myndinni kom út samnefnd EP plata með áður óútgefnum lögum úr safni sveitarinnar.

Meðlimir hljómsveitarinnar hafa sinnt ýmsum sóló- og hliðarverkefnum síðan árið 2022 en
snúa nú aftur, sameinuð á ný, með nýja plötu.

Ljósmynd með frétt: Eva Schram.

Related Post