Þátturinn Þrír í útvíkkun verður á dagskrá Radio PSB á morgun.
Mundi, Silli og Palli sjá um þáttinn. Það er ýmislegt sem þeir félagar gera í þessum þætti, annað en að monta sig af eigin ágætum. Eins og til dæmis að spila tónlist sem þeim finnst góð, tala við hvorn annan um ýmislegt sem þeim finnst skemmtilegt og velta fyrir sér allskonar hlutum og hugtökum sem þeir hrífast af… og að.
Frumflutt verða þrjú ný lög eftir þá félaga í þættinum, þar af er eitt þeirra í tveimur útgáfum.
Einnig verður frumflutt nýtt lag með Sniglabandinu sem heitir Sótt honum.
Viðtal dagsins verður við tvíeikið Astro Verse en það kemur betur í ljós í þættinum um hvaða fólk þar ræðir og frumflutt verður lag eftir dúettinn.
Missið því ekki af bráðskemmtilegum þætti á morgun á milli klunna 18:00 og 20:00 að íslenskum tíma.
Hægt er að hlusta á þáttinn hér á radiopsb í beinni útsendingu.
En nú er stöðin Radio PSB líka komin á TuneIn og því hægt að hlusta líka þar.
