KC Johns sendir frá sér nýtt lag – Rodeo Queen

KC Johns sendir frá sér nýtt lag – Rodeo Queen post thumbnail image

Tónlistarkonan KC Johns frá Nashville sótti í uppruna sinn fyrir fyrstu útgáfu sína árið 2024, lagið Rodeo Queen. Þetta er hresst rokklag með kántrí-blæ. Lagið er með grípandi “hook” eins og mest grípandi partur lagsins heitir í tónlistarheiminum, og persónulegum texta þar sem hún heiðrar ástarsögu foreldra sinna. Hún prófaði sig snemma á í barrel racing (sem eru kappreiðar á hestum á hlykkjóttri braut) en fann sinn stað í tónlistarheiminum á Beale Street í Memphis.

KC Johns á tónleikum

Þegar ég fór inn í lagasmíðastofuna vissi ég nákvæmlega hvaða stemningu ég vildi fara í,” segir KC.
Lagið Rodeo Queen er kántrí-rokklag byggt á uppáhalds ástarsögu minni.”

KC heldur áfram öflugri tónleikaferðadagskrá eftir meira en 200 sýningar árið 2023.
2024 er þegar fullbókað af sviðssýningum, enda svo sem lítið eftir af árinu.

KC Johns skapaði einnig sína eigin tegund af viskíi, KC Johns Thunder Mesquite Smoked Bourbon Whiskey, sem er hægt að panta í póstsölu og er að koma í vínsverslanir vestan hafs.

Ef þú ímyndar þér eftirfarandi: Miranda Lambert mætir Sheryl Crow með smá blæ af Brandi Carlile, og þá eruð þið komin með listamann með einstaka rödd og lög sem fá þig til að líða eins og þú hafir þekkt hana að eilífu.

KC hefur hitað upp fyrir listamenn eins og Luke Bryan og Chris Young og spilar nú á vinsælustu stöðum Nashville.

Árið 2022 gaf KC út lagið Confused sem fylgdi í kjölfar vinsæla lagsins Whiskey Break.
Confused komst á spilunarlista útvarpsstöðva um öll bandaríkin. KC gaf einnig út plötuna Thunder og ábreiðu af Nothing In Between eftir Meredith Brooks.

Hér er lagið á streymisveitu.

Related Post