Í dag klukkan 18:00 að íslenskum tíma hefst glænýr þáttur á Radio PSB.
Þátturinn heitir Þrír í útvíkkun.
Stjórnendur þáttarins er Mundi, Silli og Palli en þeir stjórnuðu einmitt þættinum Sedoranir í Sedoronum sem byrjaði og hætti í seinustu viku á Radio PSB.
Nýji þátturinn verður hugsanlega eitthvað líkur þeim “gamla” , ef svo mætti segja.
Ástæða þess að þeir félagar í þættinum Sedoranir í Sedoronum hættu með þáttinn er óljós en líklegasta skýringin er að þetta nýja nafn, Þrír í útvíkkun, kom óvart upp í seinasta þætti.
Hugsanlega, en þó vonandi ekki, verður fundið upp á nýju nafni fyrir þátt næstu viku.
Þáttrinn nýji, Þrír í útvíkkun, verður sendur út frá þremur hljóðverum í einu. Tvö þeirra eru í Noregi og eitt á Íslandi. Um sannkallaða samsendigu er að ræða.
Í þættinum nýja verður farið um heima og geima, stjörnumerkin verða kannski skoðuð og mögulega fáum við fréttafyrirsagnir á pólsku.
Gaurarnir þrír á myndinni tengjast þættinum ekki neitt, en líklega munu þeir hlusta á þáttinn. Það er hægt að gera hér á síðunni því ef leitað er þá finnast allskonar “play” takkar hér á síðunni.
Ef þú ert að skoða síðuna í síma, þá finnurðu efst á henni “hamborgaramerkið” eins og þrjár láréttar línur í lóðréttri röð eru stundum kallaðar. Svona merki ≡
Þar inni er hægt að hlusta á stöðina. Eða skruna alveg neðst á síðuna og velja play takka sem er þar.
Góða skemmtun.
