Þrír í útvíkkun – Jólaþátturinn

Þrír í útvíkkun – Jólaþátturinn post thumbnail image
Jæja, þá er það jólaþátturinn.
Hann mun að öllum líkindum hefjast á tilsettum tíma, og ganga snurðulaust fyrir sig. Svo er bara spurning hversu lengi þeir félagar endast við hljóðnemann, hvort leikurinn verður flautaður af eftir nákvæmlega 2 tíma eða hvað.
Í tilefni jólaþemans þá fá þeir Mundi, Silli og Palli í símann engan annan en höfund eins mest spilaða jólalags síðari tíma á ísa köldu. Samkvæmt Spotify er búið að spila það ríflega í eina og hálfa milljón skipta. Eru þá ótalin skiptin sem það hefur hljómað í útvarpinu. Lagið er „Jólahjól“ og er höfundurinn enginn annar en hinn góðkunni og týpíski Skúli Gautason.
Verður sett á hann þumalskrúfa og hann krafinn sagna um það meðal annars hvað hann gerir við milljarðana sem hann fær fyrir alla þessa spilun, og hvort hann sé ekki til í að gefa okkur smá pening.
Einnig munu þeir fá á línuna hana Ásdísi Aþenu, leika jólalagið sem hún samdi ellefu ára gömul, og spjalla við hana um það kannski pínu.
Þess utan þá munu þáttastjórnendur láta gamminn geysa, og leika þess á milli öðruvísi jólalög, að langmestu leyti.
Gleymið ekki að stilla útva… tölvuna og símana ykkar á Þrjá í útvíkkun, stundvíslega klukkan 18:00 á miðvikudag.
Finnið stöðina Radio PSB í TuneIn appinu eða hlustið á stöðina hér.

Related Post