
Radio PSB vinnur að því þessa dagana að sækja um leyfi fyrir útsendingu stöðvarinnar á netinu.
Seinustu upplýsingar sem ég fékk frá TONO, einu af þeim fyrirtækjum sem rukka inn gjöld fyrir spilun tónlistar í útvarpi/á netinu, er að ég sótti ekki um leyfi til að senda út á netinu utan Noregs, þar sem stöðin er staðsett, heldur einungis innan Noregs.
Ég sendi þá fyrirspurn um hvort ég gæti sótt um leyfi til að senda út hnattrænt en ekki bara staðbundið við Noreg.
Svar ætti að berast fljótlega.
