Á nýársdag, klukkan 18:00, verður sendur út þátturinn Þrír í útvíkkun.
Mundi verður að þessu sinni ekki í Noregi eins og venjan er, heldur á Íslandi. Nánar tilekið á Suðurnesjum. Palli og Silli verða í sínum stúdíóum.
Þátturinn mun verða með svipuðu sniði og stundum áður. Ekkert er þó viðtalið komið á dagskrá en mögulega plata þeir einhvern í viðtal. Það verður að koma í ljós.
Á nýársdag, 1. janúar 2025 klukkan 18:00 og fram eftir kvöldi.
Hægt er að hlusta á hér á síðunni með því að smella á logo stöðvarinnar Radio PSB (ekki FM Trölli) hér til hægri ->
Einnig er hægt að smella á link alveg efst á síðunni sem á stendur “Radio PSB Lifandi útsending í nýjum glugga”, sé síðan skoðuð í tölvu eða spjaldtölvu.
Ef þú ert að skoða síðuna í síma, þá smellirðu á bláan kassa með þremur hvítum láréttum strikum í, efst á síðunni. Þar er einnig hægt að velja “Radio PSB Lifandi útsending í nýjum glugga”.
Ef í hraðbankann slær, eins og einhver sagði, þá er hægt að hlusta á þáttinn í TuneIn appinu.
Við óskum ykkur gleðilegs árs og þökkum fyrir hlustunina á árinu 2024.
