Vegna tæknilegra vandamála kom fréttin ekki inn á réttum tíma í dag. Einnig er fyrirsögn fréttarinnar á norsku, en það gerir minna til.
Þátturinn þrír í útvíkkun verður sem sagt á dagskrá í kvöld og hefst stundvíslega klukkan 18:00:00. Honum líkur oftast óstundvíslega um klukkan 20 leitið.
Þema dagsins er passar líklega ekki við þáttinn í dag en verður samt notað: Óveðursþema.
Einhver eru óveðurslögin til en þar að auki munu þeir Mundi, Silli og Palli hringja í mann sem vinnur oft í óveðri við að skafa snjó af vegi.
Tvö ný en óskráð lög verða frumflutt í þættinum. Þau heita bæði Norðurljósin og eru í sitthvorri útgáfunni en með nánast sama textanum.
Viltu fá óskalag? Sendu þá skilaboð á Facebooksíðu stöðvarinnar og hugsanlega verður lagið þitt spilað.
Missið því ei af þættinum sem hægt er að hlusta á hér eða í TuneIn appinu.
