Þrír…. tveir í útvíkkun í dag klukkan 18:00

Þrír…. tveir í útvíkkun í dag klukkan 18:00 post thumbnail image

Í dag verður þátturinn þrír í útvíkkun á dagskrá Radio PSB. Skrítnukallatónlist verður leikin í þættinum. Einnig verður rætt við Hjalta í Bandaríkjunum því okkur langar mjög mikið að vita hvernig stemningin er þar eftir rúma viku Trumps í embætti forseta bandaríkjanna.

Í fyrirsögn segir “Þrír…. tveir í útvíkkun”. Það er vegna þess að elsku besti Silli okkar getur ekki verið með í þætti dagsins.
Það þykir voða leiðinlegt því þetta er seinasti þátturinn. Þá spyrð þú, lesandi góður, “af hverju er þetta seinasti þátturinn?”
Svarið er vegna þess að útvarpsstöðin mun hætta í lok janúar. Það verður reyndar ekki slökkt á henni en engin höfundarréttarvarin tónlist verður spiluð eftir 31. janúar næstkomandi. Mögulega verður gert eitthvað skemmtilegt á stöðinni en það er alveg víst að eigandi stöðvarinnar er svo nískur að hann tímir ekki að borga stefgjöldin, sem eru um 1600 norskar krónur á mánuði.
“Þó það sé gaman að reka útvarpsstöð, þá verða tekjur að koma inn til að stöðin borgi sig, en þær hafa ekki komið. Kannski vegna þess að ekkert hefur verið auglýst á stöðinni. Já og að stöðin hefur líka mjög lítið verið auglýst” segir útvarpsstjórinn, dagskrárstjórinn, tónlistarstjórinn og þáttarstjórnandinn Palli litli í samtali við sjálfan sig hér á radiopsb.com.

Samningum við TONO og MusikNest Norway um greiðslur fyrir stefgjöld hefur verið rift en bæði fyrirtækin buðu útvarpsstjóra velkominn aftur í hóp greiðenda stefgjalda þegar hann óskar eftir því… skiljanlega.

En missið ekki af þættinum. Hann verður í beinni útsendingu á TuneIn appinu og hér á Radio PSB klukkan 18:00 til 20:00 í dag.
Góða skemmtun.

Related Post