reyndar má segja að þátturinn hafi farið ansi illa af stað, brösulega gekk hann fram undir miðjan þátt og skánaði lítið eftir það. Tæknilega séð. Sennilega um 75% af töluðu máli í þættinum komst til skila til hlustenda. En þrátt fyrir tæknivandamál þá voru hlustendur hinir kurteisustu og létu þáttarstjórnendur alveg í friði og gekk því nokkuð greiðlega að finna og vinna úr tæknimálum. Þau voru komin í lag að mestu leiti stuttu áður en þátturinn kláraðist.
Á 27. mínútu er hægt að heyra viðtal við Hjalta Þór Hannesson sem býr í Bandaríkjunum og hann sagði okkur frá því hver staðan er þar vestra eftir úrslit forsetakosninganna þar í landi í gær.
Næsti þáttur verður að sjálfsögðu eftir viku, á miðvikudaginn kemur klukkan 18:00 til 20:00 að íslenskum tíma.
Ekki missa af honum. Það er ólíklegt að hann verði jafn mikið klúður og þessi sem hægt er að hlusta á hér á síðunni.
Smellið á > play takkan hér efst í færslunni til að hlusta.
Góða skemmtun.
