Föstudagur, 17. október (Reykjavík, Ísland)
Í dag kemur út fjórða plata Of
Monsters and Men, All is Love and Pain in the Mouse Parade.
Hljómsveitin lýsir plötunni sem eins konar heimkomu. “Síðustu ár hafa verið afar mikilvæg fyrir bandið, fjölskyldur okkar stækkuðu, við unnum í hliðar verkefnum og við leyfðum okkur að njóta þess að vera heima. Það var mikilvægt fyrir okkur að leyfa tímanum að líða og verða aftur spennt fyrir að gera tónlist saman. Þessi plata er algjörlega afurð þess og við erum innilega spennt að deila henni með ykkur öllum. “
Hljómsveitin sá sjálf um framleiðslu plötunnar og vann hana náið með góðvini sínum; tónlistarmanninum og upptökustjóranum Bjarna Þóri Jenssyni. Peter Katis (Interpol, Kurt Vile, Hozier) sá um hljóðblöndun og Josh Kaufman (The National, Bob Weir, Bonny Light Horseman) kom einnig að plötunni og skín náið samstarf þeirra í gegn.
Lagið „Tuna In A Can“ kemur út samhliða og er fjórða smáskífan sem hljómsveitin gefur út af plötunni.
Of Monsters and Men hefja umfangsmikla tónleikaferð um Norður-Ameríku þann 28. október í Toronto. Listi yfir allar dagsetningar má finna hér að neðan.
TÓNLEIKADAGSETNINGAR – haust 2025
Þriðjudagur, 28. október – Toronto, Ontario HISTORY
Miðvikudagur, 29. október – Boston, Massachusetts, Roadrunner
Laugardagur, 1. nóvember – Brooklyn, New York Brooklyn, Paramount
Mánudagur, 3. nóvember – Washington, D.C., The Anthem
Þriðjudagur, 4. nóvember – Philadelphia, Pennsylvania, The Met
Fimmtudagur, 6. nóvember – Chicago, Illinois, The Salt Shed
Föstudagur, 7. nóvember – St. Paul, Minnesota, Palace Theatre
Mánudagur, 10. nóvember – Nashville, Tennessee, The Pinnacle
Þriðjudagur, 11. nóvember – Atlanta, Georgia, The Eastern
Fimmtudagur, 13. nóvember – Austin, Texas, ACL Live at The Moody Theater
Sunnudagur, 16. nóvember – Mexico City, Mexico, Corona Capital 2025
(tónlistarhátíð)
Miðvikudagur, 19. nóvember – Dallas, Texas, The Bomb Factory
Laugardagur, 22. nóvember – Salt Lake City, Utah, Rockwell at The Complex
Sunnudagur, 23. nóvember – Denver, Colorado, Mission Ballroom
Þriðjudagur, 25. nóvember – Los Angeles, California, Hollywood Palladium
Miðvikudagur, 26. nóvember – Oakland, Kalifornía, Fox Theater
Íslenska tónlistarkonan Árny Margrét mun hita upp á öllum tónleikum.
Um hljómsveitina:
Of Monsters and Men stigu sín fyrstu skref á heimsvísu árið 2011 með plötunni My Head Is An Animal sem hefur nú verið streymt yfir 2.5 milljarð sinnum á Spotify.
Bandið á fjörmörg tónleikaferðalög að baki, ásamt því að spila á stærstu hátíðum heims: Coachella, Glastonbury, Lollapalooza o.fl.
Árið 2015 kom út platan Beneath the Skin sem náði 3. sæti á Billboard 200 listanum og Fever Dream fylgdi í kjölfarið árið 2019 og náði hún í níunda sæti á sama lista. Þegar heimsfaraldur setti svip sinn á heiminn allan tók sveitin upp heimildarmyndia Tíu, þar sem leikstjórinn og íslandsvinurinn Dean Debois fylgdi þeim eftir á ýmsa staði á Íslandi sem höfðu tilfiningaleg og söguleg gildi fyrir meðlimi hljómsveitarinnnar. Myndin var frumsýnd á Tribeca Film Festival og vann til verðlauna á Dumbo Film Festival árið 2022. Samhliða myndinni kom út
samnefnd EP plata með áður óútgefnum lögum úr safni sveitarinnar.
Meðlimir hljómsveitarinnar hafa sinnt ýmsum sóló- og hliðarverkefnum síðan árið 2022 en snúa nú aftur, sameinuð á ný, með nýja plötu.
