Inki – I Think We Would Have Been Friends

Inki – I Think We Would Have Been Friends post thumbnail image
Ingibjörg Friðriksdóttir  -Inki-  heldur áfram að gefa út nýja tónlist af plötunni sinni “Locally Grown”.
Lagið sem hún gefur út í þetta skiptið heitir “I Think We Would Have Been Friends” og kemur út í tveimur útgáfum.

Fyrir Sólarupprás

“Lagið skrifaði ég um ömmusystur mína sem var mjög litríkur karakter og óhrædd við að fara sínar eigin leiðir. Ég hef hlustað á sögur um hana í gegnum tíðina, en byggi textann ekki síður á frásögnum um hana í minningargreinum: hvernig hún dansaði upp á borðum, eldaði aldrei fyrir færri en sextán og gekk um með hamar í handtöskunni – því, af hverju ekki?

Í haust gefur Inki út fyrstu fimm lög plötunnar “Locally Grown” og kyndir þannig undir eftirvæntingu fyrir tónleika sína á Iceland Airwaves, þar sem lögin verða frumflutt ásamt nýju efni af plötunni.

Related Post