Five Finger Death Punch gefa út sína 10. breiðskífu: „Legacy“ fagnar 20 ára ferli
Bandaríska þungarokkshljómsveitin Five Finger Death Punch hefur sent frá sér sína tíundu hljóðversplötu, sem ber heitið Legacy. Útgáfan marka tímamót hjá hljómsveitinni, en 20 ár eru nú liðin frá stofnun hennar.

Five Finger Death Punch. Ljósmynd: hartmedia.co.uk
Hljómsveitin telur plötuna vera sinn stærsta og skýrasta minnisvarða til þessa. Samhliða útgáfunni kom út nýja lagið „Nails In The Coffin“, en fyrir var lag þeirra „Eye Of The Storm“ komið í efsta sæti á Mainstream Rock-lista Billboard. Það er 18. lag hljómsveitarinnar sem nær þeim árangri og bætir þar með þeirra eigið met yfir flest topplög í röð í 45 ára sögu listans.
Zoltan Bathory, stofnandi og gítarleikari hljómsveitarinnar, segir nýju plötuna vera skýrt svar til þeirra sem efuðust um að hægt væri að halda einkennishljómi sínum og búa til eitthvað nýtt og spennandi í leiðinni. „Legacy er algjört skrímsli og merki um að við ætlum ekkert að hægja á okkur,“ segir Bathory.
Viðbrögð gagnrýnenda hafa verið góð. Tónlistartímaritið Revolver mærði blöndu af þungum riffum og grípandi laglínum ásamt tilfinningaríkum söng Ivans Moody, á meðan Loudwire kallaði plötuna kröftuga yfirlýsingu fyrir nýtt tímabil hljómsveitarinnar.
Samhliða útgáfunni er hljómsveitin farin af stað með víðfemt 20 ára afmælis-heims-reisu-túr (20th Anniversary World Tour). Fyrri hluti ferðalagsins fer fram í Norður-Ameríku áður en ferðinni verður heitið til Evrópu og Bretlands snemma árs 2027, þar sem hljómsveitirnar Lamb Of God og Bleed From Within koma fram sem sérstakir gestir.
Eins og endranær nýtir hljómsveitin tækifærið til að láta gott af sér leiða. Hluti af miðasölu tónleikaferðarinnar í Bandaríkjunum mun renna til íþróttafólks sem undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana og Ólympíumót fatlaðra í Los Angeles árið 2028.
Zoltan Bathory valdi bandaríska júdósambandið (USA Judo) sem sinn styrktarþega, á meðan söngvarinn Ivan Moody mun beina sínum stuðningi til BMX-hjólreiðaliða Bandaríkjanna.
