The Rolling Stones – Welcome to the sheperd’s bush

The Rolling Stones – Welcome to the sheperd’s bush post thumbnail image

Árið 1999 spiluðu Rolling Stones magnað gigg.  Allt öðruvísi en venjulega. Þetta var kvöld fullt af hráu alvöru rokki og róli, en þó fyrir aðeins 1.800 manns í Shepherd’s Bush Empire í London. Þetta voru fyrstu tónleikar þeirra í London í fjögur ár og voru í röðinni á eftir tvennum uppseldum tónleikum á Wembley.
Þann 8. júní buðu þeir svo hörðustu aðdáendum sínum á þessa “leynitónleika” þar sem þeir spiluðu minna þekktu lögin sín og svo gullmolana.
“Welcome To Shepherd’s Bush” er frábær 4K UHD vídeó útgáfa sem fangar þessa ógleymanlegu nótt.

Með því að byrja á laginu “Shattered” settu Rolling Stones tóninn fyrir tónleikana sem voru eins og gerðir fyrir sannkallaða aðdáendur. Mick Jagger sagði meira að segja við áhorfendurna: “Ef þið viljið heyra smellina, farið þá á stóra staðinn neðar götunni” og átti þá við Wembley. Þetta kvöld spiluðu þeir “Melody” í fyrsta skipti síðan 1977. Sheryl Crow kom líka á óvart og spilaði með þeim í “Honky Tonk Women”.

Tónleikarnir minntu á upphafstíma Stones, eins og þegar þeir spiluðu á Crawdaddy Club og Eel Pie Island í London, stöðum sem hjálpuðu þeim að ná heimsfrægðinni. Þessi nostalgíski lagalisti kom strax eftir “No Security” tónleikaplötu þeirra frá 1998 og tónleikaferðalagi um Norður-Ameríku, og sýndi þeir þá fram á hversu flottir og fjölhæfir þeir eru. Meðal áhorfenda voru goðsagnakenndir rokkarar eins og Robert Plant, Jimmy Page og Lenny Kravitz, sem allir vildu sjá þessa sjaldgæfu og nánu tónleika.

“Welcome To Shepherd’s Bush” er fáanlegt á mörgum sniðum, þar á meðal Blu-ray, geisladisk og vínylplötu.
Fyrir aðdáendur sem sáu “Hackney Diamonds” tónleikaferðalagið nýlega, er þessi útgáfa tækifæri til að sjá þá á hráasta formi, þegar rokk ‘n’ roll ræturnar þeirra voru sterkar. Eins og Keith Richards sagði þetta kvöld: “Þetta er bara hreint rokk ‘n’ roll!”

Related Post