Aðdáendur gæðatónlistar geta farið að fagna, því föstudaginn 7. ágúst kemur platan Haf þú ekki áhyggjur af því loksins út.
Bogomil Font og Greiningardeildin hafa yljað landsmönnum með hverjum smellinum á fætur öðrum undanfarna mánuði, en nú er allt efnið loksins komið saman á eina glæsilega breiðskífu.
Á plötunni er að finna öll vinsælustu lögin sem þegar hafa slegið í gegn, auk fjölda nýrra og ómótstæðilegra tónsmíða.
Meðal laga sem þegar hafa vakið mikla athygli eru Sjóddu frekar egg, Þú stendur alltaf með mér þar sem stórstjarnan Emilíana Torrini syngur með, hið raunsæja lag Skítaveður, Þú trumpar ekki ástina og auðvitað nýjasta lagið sem hefur verið á hvers manns vörum, Gellur eru bestar.
Platan verður aðgengileg á streymisveitum
