Radio PSB ný útvarpsstöð

Radio PSB ný útvarpsstöð post thumbnail image

Góður lesandi.
Hér lest þú fyrstu línur nýrrar vefsíðu sem tengist nýrri útvarpsstöð.
Stöð þessi hefur fengið nafnið Radio PSB.
PSB stendur fyrir Páll Sigurður Björnsson.
Það er ég, oft kallaður Palli, Palli litli, jafnvel Sigurður hinn smávaxni eða Siggi dvergur.


Palli tekur viðtal við stokkönd í Noregi

“Ný útvarpsstöð já” gætir þú hugsað eftir að hafa lesið þessar línur hér að ofan.
“Og til hvers? Er ekki nóg til af útvarpsstöðvum í heiminum?” gætir þú bætt við i hugsunum þínum um nýja útvarpsstöð.

Þannig eru málin að ég fékk að vera með þátt á frábærri íslenskri stöð sem heitir FM Trölli.
Þar spilaði ég tónlist sem nýlega er komin út, íslenska og erlenda, þunga og létta, mikið rokkaða og lítið poppaða og allt þar á milli.
Útvarpsstjóri FM Trölla spurði mig einn daginn hvort ekki væri kominn tími hjá mér að búa til mína eigin stöð. Stöð sem spilar alla þessa tónlist.
Ég var gjörsamlega sammála því… fyrir rest,  og vinn nú í því að koma stöðinni í gang með hans góðu hjálp og ráðleggingum í tæknimálum.

Eftir nokkra dag, þegar þetta er skrifað, ætti útvarpsstöðin Radíó PSB að fara út á netið.
Enn vantar þó lógó fyrir stöðina, tónlistina sem ég vonast til að tónlistarfólk og útgefendur senda mér (því annars verður þögnin ansi hávær) og svo forrit til að keyra út tónlistina fyrir hlustendur.

Þá er stefnt að því að koma útvarpsstöðinni í smáforrit á við TuneIn og Radio Garden.

Viljir þú senda stöðinni hugmyndir eða einhverjar upplýsingar þá er það í boði með því að senda tölvupóst í tölvupóstfangið radiopsb@radoipsb.com

Related Post