Þátturinn Sedoranir í Sedoronum í beinni í dag klukkan 18:00

Þátturinn Sedoranir í Sedoronum í beinni í dag klukkan 18:00 post thumbnail image

Fyrsti þáttur Sedorana í Sedoronum verður á dagskrá klukkan 18:00 í dag að íslenskum tíma. Klukkan 19:00 að norskum tíma.
Til að ruglingurinn með tímann verði minni en nauðsynlegt þykir er hér mynd af tímasvæðum Evrópu yfir veturinn.

Núhh…
Þátturinn verður sendur út í beinni útsendingu hér á netinu hér á þessari síðu.  Hérna til hægri við þessa frétt er mynd með logo-i stöðvarinnar. Með því að smella á logo-ið þá opnast nýr gluggi og þar er hægt að ýta á > play takka.
Einnig er hér efst á síðunni texti sem gefur til kynna um hvernig hægt sé að hlusta.

En aftur að þættinum.  Stjórnendur eru þeir félagar, Mundi, Silli og Palli. Eða Yfirzetor, bumbuzetor og bazzazetor.
Myndin með fréttinni er frá í febrúar fyrr á þessu ári, hvar hljómsveitin Ðe Zetors spilaði á Þorrablóti í bænum Porsgrunn í Noregi.

Við verðum í sambandi við íslending sem hefur búið í bandaríkjunum í allnokkur ár og spyrjum hann út í forsetakosningarnar sem fóru fram í gær, og fáum hans sýn á það allt.
Við spilum tónlist og munum spila óskalög ef þau berast til okkar. Hægt er að senda skilaboð til okkar á samfélagsmiðlunum.

Hlustið á þáttinn Sedoranir í Sedoronum hér á Radio PSB klukkan 18:00 í dag að íslenskum tíma. 19:00 að vestur- og mið evrópskum tíma.

Related Post