Útvarpsstjóri stöðvarinnar fékk tölvupóst í dag frá Jazler í Grikklandi þess efnis að forritið og fylgihlutir væru komnir í póst.
Reiknað er með að sendingin taki um 3 til 10 virka daga. Því vonast útvarpsstjóri eftir því að forritið, jú ásamt fylgihlutum komi í næstu viku og hefst þá loka áfangi á uppsetningu stöðvarinnar.
Allur tæknibúnaður hefur verið samstilltur og virðist virka. Það eina sem kvelur útvarpsstjóra er tilhugsunin um að setja upp SQLServer. Það á að vera nokkuð auðvelt og skiljanlegar leiðbeiningar munu fylgja með pakkanum með forritinu.
Eftir 8 daga mun stöðin fara í gang ef allt gengur að óskum.
Vonast er eftir því að allt gangi vel.
