Þátturinn þrír í útvíkkun verður á dagskrá klukkan 18 til 20 í kvöld að íslenskum tíma.
Stjórnendur þáttarins eru sem fyrr þessir myndar menn á myndinni hér að ofan, Mundi, Silli og Palli.
Í þætti kvöldsins er íslenskt málfarsþema. Þeir gæjar ætla að tala um það sem fer í taugarnar á þeim varðandi misnotkun íslensks málfars.
Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður og prófarkalesari verður á línunni hjá þeim. Mögulega verður hringt í “jæjaaa gæjann” en það er maður sem gerði fíflagang á Snapchat með svokölluðum filterum.
Tónlist verður leikin og hægt verður að biðja um óskalög á Facebooksíðu þáttarins og hjá stjórnendum.
Þátturinn er sendur út í beinni útsendingu frá Hljóðverum eitt og tvö í Noregi og hljóðveri 3 á Íslandi.
Missið ekki af þættinum sem er sendur út á hér á Radio PSB. Einnig er hægt að hlusta á þáttinn í spilara TuneIn.
Ef þér leiðist, þá geturðu hlustað á eldri þætti hér.
