Á morgun klukkan 18:00 að íslenskum tíma verður sendur út fyrsti þátturinn sem fer á dagskrá Radio PSB.
Þátturinn heitir Sedoranir í Sedoronum.
Stjórnendur þáttarins eru hljómsveitarmeðlimir sveitarinnar Ðe Zetors, Mundi, Silli og Palli.
Þátturinn er sem áður segir sendur út á Radio PSB sem sendir enn eingöngu út á vefsíðunni radiopsb.com.
Þetta verður léttur og skemmtilegur þáttur, trúa þeir félagar, og stutt í gleði og glens.
Hlustendur geta fengið óskalög með því að senda skilaboð á einhvern þeirra á samfélagsmiðlum.
Lagalistinn er klár og líklegt að þeir félagar verði mjög klárir í að spila og spjalla um allt milli himins og jarðar í þættinum.
Í gær fór fram “tengitest” þar sem þeir félagar hittust allir, en þó hver á sínu heimili. Spjölluðu þeir saman um ýmislegt, lögðu línur að þættinum og urðu sammála um þau lög sem eru á lagalistanum fyrir þáttinn.
Tæknimálin eru í mjög góðu lagi en það þarf gríðarlegan tæknibúnað fyrir svona millilandaútsendingu. Og ekki síst verulega tæknikunnáttu og tæknireynslu svo að allt fari nú ekki forgörðum eins og sagt er.
Mjög ólíklegt er að ekkert klikki en klikkum verður reynt að halda í algjöru lágmarki.
Missið ekki af þættinum á morgun klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Það er þá klukkan 19:00 að mið-evrópskum tíma.
