Þrír í útvíkkun – þema: Gunnar Þórðarson, við reynum aftur

Þrír í útvíkkun – þema: Gunnar Þórðarson, við reynum aftur post thumbnail image

Miðvikudagur kemur senn, ber hann með sér þáttinn “Þrír í útvíkkun” eins og endranær.

Þema þessa þáttar verður sjálfur Gunnar Þórðarson, en hann átti stórafmæli nú nýverið.

Stiklað verður á stóru í ferilskrá Gunnars og eitthvað af lögum leikin, bæði eftir hann og aðra, lög sem hann hefur þá stjórnað upptökum á.

Á línunni verður Rúna Stefáns, en hún hefur unnið töluvert með Gunnari. Ekki missa af þessu!

Stjórnendur þáttarins eru að venju Mundi, Silli og Palli, Ðe Zetors.

Hægt verður að hlusta á þáttinn hér á síðunni radiopsb.com nú eða á TuneIn síðunni og er hann á dagskrá klukkan 18:00 til 20:00.

Related Post