Í ár fagnar hljómsveitin Hjálmar 20 ára afmæli sínu. Nú hefur hljómsveitin gefið út glænýtt lag sem ber nafnið “Vor”. Lagið er samið af Þorsteini Einarssyni, söngvara og gítarleikara sveitarinnar.
Til að fagna afmælinu spiluðu Hjálmar á Iceland Airwaves að kvöldi 7. nóvember í Listasafni Reykjavíkur.
Myndband við lagið kom út í gær og má sjá það hér.
Hjálmar eru:
- Þorsteinn Einarsson (gítar, söngur)
- Sigurður Guðmundsson (hljómborð, söngur)
- Helgi Svavar Helgason (trommur)
- Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson (bassi)
- Guðmundur Kristinn Jónsson (gítar)
Gestir:
- Óskar Guðjónsson (saxófónn)
- Eiríkur Orri Ólafsson (trompet)
Upptökur:
Lagið var hljóðritað í Hljóðrita, Flóki Studios og Skammakróknum.
Hér er hægt að hlusta á lagið á streymisveitu.
