Nýtt lag frá Bogomil Font & Greiningardeildinni – Gellur eru bestar

Nýtt lag frá Bogomil Font: „Gellur eru bestar“

Söngvarinn geðþekki Bogomil Font mætir aftur til leiks ásamt Greiningadeildinni með glænýtt lag sem ber titilinn „Gellur eru bestar“.

Lagið gefur góða tóninn fyrir það sem koma skal, en það er fyrsta smáskífan af væntanlegri breiðskífu listamannanna. Nýja platan hefur þegar fengið nafnið Haf þú ekki áhyggjur af því og er væntanleg í streymisveitur og verslanir í lok júní.

Aðdáendur Bogomils og Greiningardeildarinnar geta því farið að hlakka til sumarsins, en nánari upplýsingar um útgáfudag og tónleikahald munu vafalaust líta dagsins ljós á næstu vikum.

Lagið er komið á streymisveitur.

Flytjandi: Bogomil Font & Greiningardeildin

Heiti lags: Gellur eru bestar

Höfundur lags og texta: Bragi Valdimar Skúlason

Related Post