Nýtt og dansvænt lag frá Hjálmum: Hvað gera fjöllin?

Reggíkóngarnir í Hjálmum voru að senda frá sér glænýtt lag sem ber titilinn „Hvað gera fjöllin“. Hér er á ferðinni sérlega dansvænt og grípandi lag sem dregur upp áhugaverða samlíkingu milli manna og náttúrunnar. Á meðan við mannfólkið eigum það til að flækja hlutina upp úr öllu valdi og hlaða á okkur óþarfa áhyggjum, standa fjöllin keik. Þau virðast sýna ótrúlegt æðruleysi, hafa engar áhyggjur og kippa sér ekki upp við þær breytingar sem verða í kringum þau.

Lagið var hljóðritað á þessu ári í Hljóðrita og Skammakróknum. Upptökum stýrðu þeir Guðmundur Kristinn Jónsson og Sigurður Guðmundsson, en Guðmundur Kristinn sá einnig um hljóðblöndun og hljómjöfnun.

Auk kjarna hljómsveitarinnar njóta Hjálmar aðstoðar góðra gesta í laginu, en aukagítarinn er í höndum Rubins Pollock og Davíð Crivello sér um raddanir.

Hjálmar skipa:

  • Þorsteinn Einarsson

  • Sigurður Guðmundsson

  • Guðmundur Kristinn Jónsson

  • Helgi Svavar Helgason

  • Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson

Nýja lagið er komið á streymisveitur og það er tilvalið til að dilla sér við það og minna sig á að anda djúpt – og hafa aðeins minni áhyggjur, rétt eins og fjöllin.

Related Post