Enn ein ný plata frá Bubba Morthens

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sendi frá sér nýja hljóðversplötu þann 8. maí sl. sem ber titilinn
Ég er ekki sá sem þú heldur ég er sá sem ég er.
Platan er aðgengileg á helstu streymisveitum auk þess sem hún er fáanleg á vínyl og geisladiski.

Á plötunni er að finna 11 lög, þar á meðal smáskífurnar Bláu ljósin, Hún og Við föllum sem hafa þegar fengið töluverða spilun.

Nokkrir gestasöngvarar koma við sögu á útgáfunni; Friðrik Dór syngur með Bubba í laginu Hún og Diljá Pétursdóttir leggur til raddskipan í laginu Júlíkvöld.

Að útfærslu og hljóðritun plötunnar stóð Halldór Gunnar Pálsson, upptökustjóri og meðlimur í Fjallabræðrum. Hönnun á plötuumslagi var í höndum Kristínar Morthens og Sverris Arna Pálssonar.

Flytjandi:: Bubbi
Heiti plötu:: Ég er ekki sá sem þú heldur ég er sá sem ég er
Útgefandi:: Alda Music
Höfundur laga og texta:: Bubbi Morthens

Related Post