Krummi Björgvins – Hinterland

Aðdáendur Krumma Björgvinssonar eiga von á góðu tónlistarhausti, en söngvarinn og lagahöfundurinn er nú þegar farinn að leggja línurnar fyrir væntanlega breiðskífu sína.
Nýjasta útspil hans er smáskífan „Hinterland“, sem kom út þann 26. júní og er nú aðgengileg á öllum stærstu streymisveitum tónlistar.
Lagið er kraftmikil en jafnframt ljóðræn smíð sem fellur undir stefnu norræns alt-country. Í verkinu tekst Krumma að flétta saman áhrifum úr þjóðlagatónlist og myndrænum texta, þar sem hlustandanum er boðið í ferðalag út í óspillta náttúru. „Hinterland“ dregur upp sterka stemningu af óbyggðum, frelsi og hinu óþekkta, en kafar jafnframt ofan í tilvistarlega hugsun um dauðleikann og hið innra líf mannsins.
Þetta er önnur smáskífan sem Krummi sendir frá sér af plötunni sem væntanleg er á markað þegar fer að hausta. Sú fyrri, „Smile Till It Ends“, fékk frábærar viðtökur meðal hlustenda og útvarpsstöðva, en lagið sat m á vinsældalista Rásar 2 í rúma tvo mánuði.

Related Post