Kári Egils gefur út nýtt lag

Umslag plötunnar My Static World. Teikning: Didda Flygenring.

Kári Egils gefur út fyrsta lagið af væntanlegri plötu sem heitir My Static World.  Lagið sem kemur út í dag, 17. janúar nefnist Midnight Sky.

Hljóðfæraleikarar á Midnight Sky:
Kári Egilsson: Píanó, Söngur
Magnús Trygvason Eliassen: Trommur
Albert Finnbogason: Bassi, gítar, hljóðgervill, kassagítar, rafgítar

Um Kára.

Kári Egilsson er fæddur 2002. Hann byrjaði að læra á píanó sjö ára gamall. Hann er mjög fjölhæfur tónlistarmaður, leikur jöfnum höndum djass, klassík og popp. Kári er nemandi við Berklee tónlistarháskólann í Boston og hlaut veglegan styrk til að stunda nám þar. Hann er handhafi hvatningarverðlauna bandaríska ASCAP fyrir unga lagahöfunda. Kári var valinn bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2024.

Related Post