Nýr þáttur á Radio PSB – Sedoranir í Sedoronum

Til stendur að prófa að hafa þátt á útvarpsstöðinni Radio PSB.
Þátturinn verður á dagskrá á miðvikudaginn 6. nóvember næstkomandi á tímanum 18:00 til 20:00.
Það eru meðlimir hljómsveitarinnar Ðe Zetors sem sjá um þáttinn. Þeir eru kallaðir Yfirzetor, Bumbuzetor og Bazzazetor  og líka Mundi, Silli og Palli. Og þau ykkar  sem þá þekkja vita að það verður mikið hlegið í þættinum.
Eitt og eitt lag mun komast að og allskonar gagnlegar og ógagnlegar staðreyndir verða í boði fyrir hlustendur.
Hægt verður að biðja um óskalög, en ekki öruggt að þau verði spiluð.
Líklega verður hægt að hringja í þáttinn, en ekki er víst að verði svarað.

NÁNARI UPPLÝSINGAR KOMA ER NÆR DREGUR.

Spennið því beltin kæru lesendur og hlustið á þáttinn Sedoranir í Sedoronum á Radio PSB.
Hægt er að hlusta á þáttinn á heimasíðun stöðvarinna.
Ertu að skoða síðuna í síma?
Farðu þá ALVEG neðst á skjáinn og smelltu þar á > píluna sem er þar. Þá heyrirðu í stöðinni 🙂
Góða skemmtun.

Related Post